|
Það hefur lengi staðið til að smakka þennan fræga
stout sem á að vera ansi sérstakur. Jú á
kiddakvöldi laugardaginn 4.5.2008 var þa ð
loks að veruleika. Í nefi má finna sætan keim
með vanillu og sætum vínanda ásamt kaffi og malti.
Í munni er góð fylling, mikill sætur ávaxtakeimur og
vanilla smá sem þó hverfur einhvernveginn og sopinn
verður þurr á tungu og ögn bitur með brenndum keim.
Kaffi er til staðar sem og súkkulaði. Dálítið
dularfullt að eftirbragð er langt og einkennist af
eplakeim. Já en svona í heildina þá er um fínan
stát að ræða en þó ekkert eitthvað sem ég er að missa
mig yfir. Fyrir stout unnendur þá er þessi bjór
vel þess virði að prófa. |