web log free Post Road Pumpkin Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Post Road Pumpkin Ale

stíll :

Jurtabjór - Öl

brugghús :

Brooklyn Brewery

land :

Bandaríkin 

alkóhól :

5.0 %

fyrst smakkað :

20.10.2005

smökkunarstaður :

Árósar

Graskersbjór kann að hljóma eitthvað nýtt uppátæki en svo er í rauninni ekki.  Bjór bruggaðan úr graskerjum má rekja alveg aftur til landnema Bandaríkjanna en á þeim dögum leituðu menn að ýmsum náttúrulegum hráefnum til að nota í bjórgerð sína.  Grasker uxu um allt og voru bæði bragðmikil og holl og því kjörið hráefni.  Grasker var því algengt hráefni í bjórgerð á þessum tímum og oft blandað með byggi.  Post Road Pumpkin Ale er bruggaður á gamla góða mátann.  Bjórinn er annars mjög kryddaður í nefi með miklum negul og kanil og minnir á jólaglögg.  Í munni er bjórinn hins vegar mildari en nef gefur til kynna.  Kryddaður með léttum biturleika og pínu þurr og ögn sætur.  Nú veit ég ekki alveg hvernig grasker bragðast en gæti trúað að það sé líkt bragði sem ég finn þarna líka en get ekki skilgreint.  Mjög góður kryddaður eftirkeimur.