|
Port
brewing er amerískt örbrugghús af bestu gerð. Þeir eru
duglegir að gera humlaða karla á borð við IPA og Imperial IPA.
Þessi er eins og nafnið bendir til um bruggaður fyrir
humlahausa eins og þeir kalla okkur í Bandaríkjunum, "hop
heads". Um er að ræða humlaðan ofurkarl. Fullt af
sítrus, beiskju og furunálum í nefi. Flott froða, mattur
og fallegur í glasi og svo flókið og mikið bragð sem situr
eftir. Fullt af humlum og beiskju. Sítrus, fura og
fleira gott. Það vantar þó nokkuð upp á þéttleikann sem
ég nánast stóla á í þessum Imperial bjórum. Beiskjan
verður þannig nokkuð innantóm og yfirgnæfandi. Já ég
varð eiginlega ekki nægilega kátur með þennan bjór, annars er
Port Brewing frábært brugghús en þessi var ekki að virka.
Samt góður IPA, ekki misskilja mig. |