|
Port
Brewing er bandarískt örbrugghús staðsett í San Diego og hóf
bruggun í heimahúsi 1992. Síðan þá hefur brugghúsið
stækkað og bjórúrvalið með. Þessi spennandi IPA er
amerískur India Pale Ale eins og hann gerist bestur, búin til
úr eins ferskum humlum og unt er. Hann er einungis
bruggaður einu sinni á ári eða um það leiti þegar
humlauppskeran er tilbúin. Bjórinn er fallegur í glasi,
koparlitaður með prúðan froðuhaus. Í nefi má finna
sannindi þess að humlar eru hér í aðalhlutverki, ferskur
grösugur og með dálitlum sykurkeim. Í munni eru iðandi
humlar með mikilli beiskju og miklum tærleika.
Greinilega Amarillo og Chinook. Namm, svo er ljúft
léttristað malt í bakgrunni og afar ljúfum eftirkeimnum.
Glæsilegur bjór |