|
Port
brewing gerir ansi magnaða bjóra. Þessi er engin
undantekning. Framleiddur í takmörkuðu upplagi ár hvert
til að fagna tilurð brugghússins. Bjórinn er af gerðinni
strong ale en ég vil meina að Imperila IPA sé einnig flott
lýsing á stílnum. Gríðarlega humlaður bjór. Mattur
og appelsínugulur í glasi með ofsalega fallegan froðuhaus.
Í nefi má finna furu og sítrus í miklu magni. Humlar
humlar humlar. Í munni er hann flókinn og margslunginn
með þéttan mikinn karakter og gríðarlega beiskur og notalegur.
Áfengið kemur hvergi fram, nema kannski sem þynnka daginn
eftir. Virkilega magnaður bjór fyrir þá sem hafa gaman
af humlum. |