|
Pilsner
Urquell eða hinn upprunalegi
pilsner á íslensku er eins og nafnið segir fyrsti
pilsner veraldar. Já þessi gullni pilsner kom fyrst fram á
sjónarsviðið árið 1842 í Pilsen í Bæheimi og varð þá fyrsti
ljósi lager sögunnar. Orðið pilsner
festist svo við bjórinn og hefur loðað við allan ljósan
lager æ síðan. Þetta er nettur góður bjór, ljúfur og
mildur og alls ekki rammur en hefur þó ljúffenga snarpa
humla sem kitla tunguna. Skilar léttu og fínu eftirbragði.
Þennan bjór er hægt að fá í
ÁTVR á furðulega góðu verði
og mæli ég með því að menn prófi þennan upprunalega pilsner.
Pilsner Urquell hentar vel með mat og er einnig ljúfur sem
nettur listauki.
ATH: Fyrirmynd hins ljósa lagers í heiminum í dag! |