web log free Pere Noel
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Pére Noel

stíll :

Belgískt jólaöl

brugghús :

Brouwerij De Ranke

land :

Belgía

alkóhól :

7,0 %

fyrst smakkað :

7.12.2006

smökkunarstaður :

Árósar

Stundum þegar ég er á höttunum eftir góðum bjór en veit ekki alveg hvað ég á að velja þá skoða ég merkimiðana á flöskunum.  Reynslan  hefur nefnilega kennt mér að flöskur sem ekki reyna að ginna mann með glæsilegum miðum eru oftast bestir.  Það þarf ekki annað en að líta á Westvleteren.  Ég rakst á þennan karl sem mér finnst ekkert voðalega aðlaðandi en viti menn innihaldið kom svona líka skemmtilega á óvart. Þetta er mattur ljósbrúnn bjór með ögn sætan mandarínukeim í nefi ummm. Gríðarlega gómsætur í munni og matmikill.  Sætur og jafnframt beiskur með ögn sítrus og þó alls ekki súr, svo má finna brenndan sykur eða kandís og ljúffengt malt.  Í heildina afar heilsteyptur bjór með allt sem til þarf fyrir góð jól.  Fylling góð og ljúffengt eftirbragð með humlum og grasi.