web log free Paulaner Salvator
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Paulaner Salvator

stíll : Doppel Bock
brugghús : Paulaner Brauerei GmbH & Co
land : Þýskaland
alkóhól : 7.5 %
fyrst smakkað : 27.3.2005
smökkunarstaður : Århus

Salvator sem þýðir bjargvættur eða frelsari er nafn á bjór sem hér áður fyrr myndaði sér bjórstíl.  Bjór þessi var hafður sérstaklega maltaður og þjónaði þeim tilgnangi að vera fljótandi brauð fyrir munka St Francis reglunnar í föstunni.  Munka greyin voru svo hamingjusamir með þetta "brauð" sitt að þeir skýrðu það bjargvættinn eða Salvator.  Í þá daga hófu fleiri að brugga svipaðan bjór og kölluðu einnig Salvator sem nafn á þessum sérstaka bjórstíl.   Í dag kallast stíllinn hins vegar bara Doppel Bock sem er sérstaklega sterk útgáfa af Bock.  Bjórinn skartar fínni þéttri froðu sem varir skammt.  Í nefi má finna sætar sveskjur og möndlur en í munni er hann vel maltaður ögn brenndur og afskaplega bragðmikill.  Bjórinn hefur vínlegan karakter en þó ekki um of.  Þetta er "þéttur" bjór og maltið er áberandi og gefur ákveðinn rúgbrauðsfíling en humlar koma einnig  inn og eyða sætunni.  Eftirbragð er með EINDÆMUM gott ummmmm. Fínn lager hér á ferð!