web log free Paulaner Premium
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

Paulaner Premium Pils

stíll : Þýskur Pilsener
brugghús : Paulaner Brauerei GmbH & Co
land : Þýskaland
alkóhól : 4.9%
fyrst smakkað : 14.01.2005
smökkunarstaður : Århus

Ég keypti mér þennan kall á ferðum mínum um Þýskaland hérna um árið en er núna fyrst að smakka hann.  Hefði nú mátt gera það fyrr því þetta er bara hinn ljúfasti pilsner.  Mjög gómsætur pilsner og óvenjulega bragðmikill.  Minnir pínu á ölsvepp með ögn sætan keim í nefi auk humla.  Í munni byrjar sopinn með miklu gosi og mildum humlum sem sætt maltið dekkar að hluta en þegar líður á sopann koma humlarnir spriklandi fram og rammleikinn verður ögn meiri.  Bjórinn lifnar þá við og verður mjög hressandi.  Mjög skemmtilegur lager með ölsnefil!