|
Ég
var mjög spenntur yfir þessum enda brugghúsið rómað fyrir gæði
sín. Í glasi er um svartan fellgan bjór að ræða með þykka
fína froðu. Í nefi er hann sætur, með mikinn keim af anis og mandarínum ásamt kandís.
Í munni gríðarlega mikill í munni með heilmikið bragð. Vel
kolsýrður, ger,þurrkaðir ávextir, anis, appelsínur, ristað
malt og brenndur sykur sem kemur inn með fyllingu og ljúfan
mótleik við humla sem nánast finnast ekki. Ögn remma líklega
af appelsínuberkinum
og kannski anisnum kemur inn á móti maltinu og vegur það alveg
rétt mátulega upp. Þessi fína upplifunin endar svo með
óvenju þægilegu löngu og ljúfu eftirbragði með karamellu,
brenndum sykri og ristuðu malti. Já það er í raun þetta
dásamlega eftirbragð sem heillar mig mest við þennan frábæra
bjór en það er líka magnað hve margar bragðtegundir maður
upplifir í þessum karli. |