|
Lýsingin
hljómar vel, þurrhumlaður yfirgerjaður bjór með
dásamlegum amarillo og cascade humlum sem eru ómissandi humlar í
amerískum IPA sem er í sérlegu uppáhaldi. Bjór
þessi er þó ekki IPA, til þess þarf hann að vera beiskari.
Fallegur er hann í glasi, koparlitaður en froðan er
frekar slök. Hverfur á augabragði. Það er
þó í lagi því restin af bjórnum er frábær. Í
nefi eru dásamlegir humlarnir áberandi með einhverja
blómlega sætu með. Í skolti er um afar þægilegan
bjór að ræða, enginn ölkeimur sem pirrar marga, malt
og humlar í fíngerðu jafnvægi þar sem humlar hafa þó
yfirhöndina og skapa afar þægilega beiskju sem vel er
merkjanleg. Maltið gefur samt þægilega sætu og
fyllingu. Virkilega ljúfur bjór og eftirbragðið
afar gott og varandi. Besti páskabjórinn þetta
árið. |