|
Það
er glæsileg flaska sem ÖB teflir hér fram með undir
sjálfan páskabjór sinn. Súkkulaði porter er
það að þessu sinni. Já súkkulaði er eitthvað
sem við Íslendingar erum farnir að tengja ansi vel
við páskahátíðarnar og því viðeigandi að koma því
ofan í flösku líka. Porter er reyndar ekki
allra en það er aðdáunarvert að ÖB þorir að skapa
alvöru bjór. Súkkulaðið er nokkuð vel
greinanlegt þannig að menn ættu alveg að prófa
þennan sem kunna vel við súkkulaði og já kaffi
einnig. Í nefi ögn reykur, smá súkkulaði. Munnur, létt
beiskja, dökkt súkkulaði í bakgrunni, ristað
léttreykt súkkulaði maltið er áberandi.
Fylling góð og ljúft eftirbragð með blöndu að
súkkulaði og espresso. Sem porter er þetta
mjög vel heppnaður bjór og kunni maður vel við
stílinn þá er þessi bjór málið. Súkkulaðið kemur vel
út. Bjórinn passar vel við steikt nautakjöt og
grillmat. Svo má ekki gleyma ostunum og einnig
góður einn og sér í stað kaffi eftir matinn t.d.
|