web log free Ölvisholt Pelé Kaffibjór
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ölvisholt Pelé Kaffibjór

stíll :

Rauðöl

brugghús :

Ölvisholt Brugghús

land :

Ísland

alkóhól :

5,5%

fyrst smakkað :

4.7.2010

smökkunarstaður :

Reykjavík

Bjór þessi er afsprengi samstarfs Kaffitárs og Ölvisholt Brugghúss.  Bjórinn er bruggaður að tilefni 20 ára afmælisárs Kaffitárs. Þetta er blanda rauðöls og uppáhellts kaffi frá Daterra í Braselíu.  Hmm gæti verið að nafnið sé þaðan komið....HM og Braselía?  En að dómnum, í nefi er dásamleg blanda af kaffi, humlum, súkkulaði og sætu píputóbaki.  Hann er rauður og fallegur í glasi með heldur litla froðu þó.  Heldur léttur í munn, bragðmikill en samt mildur.  Kaffitónninn er ráðandi í gegnum allan sopann, spriklandi humlar gefa meðal beiskju sem peppa bjórinn upp, sér í lagi í lokin og svo má finna snefil af dökku súkkulaði og jafnvel ööööörlitla vanillu.  Mjög skemmtilegur bjór og mikil synd að hann skuli ekki fást í ÁTVR.  Að svo stöddu fæst hann aðeins á tveim stöðum kaffitárs (Leifstöð og í Borgartúni).  Afskaplega skemmtilegt framtak smellpassar með t.d. brownies.