|
Nørrebro
Bryghus er líklega það brugghús sem hefur
komið mér hvað mest á óvart í gegnum tíðina.
Sérstaklega fyrir þær sakir að hingað til
hefur danskt öl ekkert sérstaklega höfðað til mín.
Brugghúsið bruggar um 15 bjórtegundir sem hægt er að
fá á krana hjá þeim sjálfum þar sem maður getur sest
niður í bjórstofu þeirra eða pantað sér borð í
resturantnum. Hver einasti bjór sem ég hef smakkað
hjá þeim er algjört hnossgæti. Hægt er að fá 3
tegundir á flösku, þar á meðal
besta bjór
Danmerkur að mínu mati, sem og þennan jólabjór
yfir hátíðarnar. Bjór þessi er afar þægilgur í
nefi og munni með ríkjandi negul og kanil sem kemur
manni í rétta jólaskapið. Þetta er dálítið
humlaður bjór með þægilega beiskju og fyllingu. Já
besti jólabjór Danmerkur er hér fundinn held ég. |