web log free Nørrebro Påske Bock
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Nørrebro Pacific Summer Ale

stíll :

Amerískt Gull-öl

brugghús :

Nørrebro Bryghus

land :

Danmörk

alkóhól :

5.6 %

fyrst smakkað :

28.08.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Húrra fyrir Nørrebro Bryghus, hér kemur einn af þrem nýjum bjórum frá þeim á flösku.  Það er mikil eftirvænting þegar þessi lekur ofan í glasið. Fyrsti sopinn rétt innan seilingar.  Strax og í glas er komið mætir manni mikill ilmur, sætur og hressandi með sítrus og appelsínu og jurtum.  Svo er komið að sopanum...umm mildur en bragðmikill þó með gríðarlega þægilegt og spriklandi yfirbragð.  Dálítil beiskja, ögn þurr með sítrus og notalegum humlum.  Mjög skemmtilegur bjór og léttur.  Vissulega þægilegur sumarbjór en allt árið hentar líka bara mjög vel.  Það væri synd að sleppa að drekka þennan bara af því að það er ekki sumar.  Já þeir brugðust mér ekki að þessu sinni þessir snillingar þarna í kaupmannahöfn.  Fínn matbjór t.d. með skelfisk.