|
Gult
gult gult, já hér kemur sumarsmellur frá Nørrebro
Bryghus. Rakst á þennan í hillum Bilka í dag og
varð bara að kippa honum með...það er jú brostið á
sumar og sól hér í Danmörku. Þessi er alveg
glænýr á flösku og vona ég að menn hér í Danmörku taki
vel á móti honum. Hvað er betra en ískaldur
hveitibjór á heitum degi?. Í glasi er þetta
strágulur eða hvíleitur og mattur bjór með hnausþykka
og myndarlega froðu. Í nefi, lime og
engifer kannski? Í munni súr pínu, lime eða
sítróna en dauf samt, biturleiki kemur nokkuð vel inn
og gerir meiri bjór úr þessum karli. Bjórinn er
þó vel mildur, léttur og svalandi alveg eins og góður
hveitibjór á að vera.. |