web log free Nørrebro Skärgaards Porter
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Nørrebro Skärgaards Porter

stíll :

Porter

brugghús :

Nørrebro Bryghus

land :

Danmörk

alkóhól :

6.0 %

fyrst smakkað :

01.02.2008

smökkunarstaður :

Árósar

Loksins tókst mér að finna þennan í Árósum.  Væntingar eru ekki miklar þar sem porter er ekki mitt uppáhald hins vegar er pínu spenningur þar sem um bjór frá eitt af mínu uppáhalds brugghúsi í Danmörku er að ræða.  Já en að sjálfum bjórnum, kolsvartur í glasi með froðu sem hverfur strax. Nef gefur hina hefðbundna stout/porter lykt sem má bendla við dökka þurrkaða ávexti, sætu, og svona eitthvað brennt/reykt eitthvað, jafnvel súkkulaði dökkt.  Í munni er mikið gos og svo ögn reyktur keimur og brennt malt.  Bjórinn er líka ögn þurr á tungu.  Þetta er annars frekar mildur bjór en liggur vel í munni.  Eins og porter sæmir þá má svo finna, þurrkaða ávexti, og jafnvel kaffibaunir.   Eftirbragð einkennist af brenndu malti og dökku súkkulaði.  Fínn porter fyrir þá sem kunna vel við þann stíl.  Ég er hins vegar lítt hrifin af stílnum.