|
Nú er komin ansi góð reynsla hjá mér á bjór frá
Nørrebro Bryghus. Þeir eru vægast
sagt einstakir flestir. Þessi er einn þeirra.
Hér er um að ræða heilmikið verkefni fyrir öll
skilningarvit. Í röngum höndum er hætt við að
illa fari. Þá á ég við að menn sem lítt eru vanir
eðalbjór gætu átt það til að fussa eða enn verra hella
bjórnum niður. Það væri hræðilegt. Þessi
bjór er nefnilega verðugt verkefni. Í nefi eru
humlar og nóg af þeim og jafnvel má finna smá amarillo
en líka ögn sætan maltkeim. Í munni er þetta
gríðarlega bragðmikill bjór, ræðst beint á bragðlauka
með öllu afli. Minnir óneitanlega á IPA enda hér
um Tripel IPA að ræða. Mikil beiskja og
biturleiki, hellingur af ýmsum humlum. Töluvert
þurr á tungu með eyrnamerg eins og vera ber og svo er
hann mjúkur mjög. Það er svo líka einhver sætur keimur
sem gæti verið mandarínur en einnig sé ég fyrir mér
karamellu. Já gríðarlega skemmtilegur bjór og
alls ekki eins bitur og ég bjóst við. Undir lok
flöskunnar má finna dálítið fyrir vínandanum. |