|
Hér
er kominn karl sem vert er að skoða nánar. Þó
ekki nema aðeins fyrir þær sakir að þetta er einn af
örfáum bjórum úr stout fjölskyldunni sem ég kann vel
að meta. Önnur ástæða er svo að skaparar
bjórsins eru þeir Nørrebro menn
sem sjaldan klikka. La Granja er gott dæmi um
vel lukkaðan sætan stout að enskri fyrirmynd, reyndar
tilheyrir hann meira flokki bragðbættra stouta því í
hann er notað kaffi "extrakt" úr mexikönsku gæðakaffi.
Í glasi er hann svartur sem nóttin og með guðdómlega
froðu með kaffilatte blæ. Þetta er kraftmikill
bjór sem býður upp á mikla mýkt og svo flókið
margslungið bragð sem kemur manni til að hugsa um
nýmalað kaffi, sætan lakkrís og dökkt brennt
súkkulaði. Þetta er bara gríðarlega skemmtilegur stout
og fær mín fullu meðmæli. Get ekki beðið eftir
að prófa þennan með grillsteikinni eða frönsku
súkkulaðikökunni. |