|
Bjór þessi er bruggaður til heiðurs ársins 2007 sem á
víst að vera ár iðnvæðingarinnar. Bjórstíllinn kallast
Californian Common sem er eins konar sambland
af hinu eldra öli og lager en á tímum kæliörðuleika
notuðu menn lager ger og brugguðu við hærri hita líkt
og tíðkast með ölið. Momme Dampøl
er bruggað sem tilvísun í tilkomu gufuvélarinnar inn í
bruggiðnaðinn og skipt var úr handbruggun yfir í
iðnbruggun. Í nefi er undarlegur keimur með
brenndu malti og viðarkolum. Bjórinn er bragðmikill og
mjúkur með góða fyllingu en bragðið er ekki alveg
fyrir mig. Dálítið bitur með brenndu malti og
svo mjög reyktur, eiginleiki sema sem mér finnst bara
ekki passa við bjór eða vökva yfir höfuð. Reykt
kjöt, eða viðarkol er eitthvað sem strax kemur í
hugann...hver vill drekka slíkt? En eflaust
einhverjir þarna úti sem kunna að meta þetta. |