web log free Nøgne Ø Imperial Stout
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Nøgne Ø Imperial Stout

stíll :

Imperial Stout

brugghús :

Nøgne Ø

land :

Noregur

alkóhól :

9.0 %

fyrst smakkað :

07.09.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Nakta Eyjan já, hmmm þetta skemmtilega nafn er nafnið á norsku örbrugghúsi einu sem ku brugga afbragðs bjór.  Nú er ég ekki mikið fyrir stout eins og löngu er oðrið kunnugt, en mikill bjórgæðingur (Haukur Heiðar) benti mér á að þetta væri einn besti bjór veraldar svei mér þá.  Ég ákvað að slá til þegar ég rakst á þennan í Kvikly hér í DK.  Í glasi er þetta kolsvartur karl með mikla brúna og mjúka froðu, mjög flott.  Í nefi mæta manni sætar bakaðar sveskjur og í munni er hann mjúkur eins og rjómi og með gríðarlega fyllingu og mikið gos.  Ögn reyktur með þægilegan brenndan maltkeim, kaffi og ögn dökkt súkkulaði og hnetur.  Pínu beiskur humalkeimur í restina. Bjórinn er bruggaður á gamla mátann, gerjun í flösku, ófiltreraður og ógerilsneyddur.  Bruggmeistarar mæla með að drekka þennan einan og sér eða með dökku súkkulaði