|
Þetta er óvenjulega frískandi bjór, með ögn þurran karakter og
súr á tungu. Humlar eru ekki áberandi en þó er mikil
beiskja til staðar og að auki er mikið gos í þessum kalli.
Létt fylling og rennur létt niður. Alkóhólið er
algjörlega falið. Bjór þessi
hefur legið inní ískáp í nokkrar vikur og því kom það
skemmtilega á óvart hve góður hann var. Þurri súri
karakterinn gerir þennan bjór ögn í anda hvítvína og ískaldur
er hann rosalega frískandi. Ég veit lítið um þetta
brugghús nema það að það er hollenskt og framleiðir slatta af
bjórum sem gaman væri að prófa við tækifæri. ATH - bjór
þessi var framlag Magga og Rögnu í bókina og þökkum við fyrir
það! |