web log free Nils Oscar India Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Nils Oscar India Ale

stíll :

Indian Pale Ale

brugghús :

Nils Oscar

land :

Svíþjóð

alkóhól :

5.3 %

fyrst smakkað :

06.09.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Maður fær aldrei nóg af IPA, þessi er samt ekki danskur eins og maður á að venjast heldur frá frændum þeirra Svíum.  Já Nils Oscar er lítið og tiltölulega nýtt örbrugghús í Svíþjóð sem bruggar margar mismunandi bjórgerðir.  Þessi bjór er bara nokkuð svipaður hinum danska IPA,  í nefi er hann blómlegur, líflegur og humlaður ummm. Þurr í munn, vel humlaður með þetta einkennandi grape/eirnamergs bragð af amarillo humlunum.  Bragðmikill og óskaplega fullur í munn.  Maltið kemur líka inn og ber uppi humlana með góðu móti og gefur einhverja svona smá sætu sem þó ekki nær að brjótast alveg í gegn um beiskjuna.  Þetta er svona í heildina bara ansi góður IPA og ekkert betri eða verri en t.d. Nørrebro Bombay Pale ale eða Mikkellers Green Gold sem reyndar eru mínir uppáhalds IPA.