|
Hér erum við með fallegan jólabjór af lagerstíl eða
mars/oktoberfest bjór eins og Þjóðverjar kalla þennan stíl.
Þetta er kóklitaður bjór með froðu sem rétt lætur sjá sig en
hverfur svo með öllu. Í nefi má finna mikla humla og ögn
brenndan sykur. Þetta er mjög léttur karl og fyllir ekki
skoltinn að fullu. Af lager að vera þá er þetta ágætis
upplifun en þetta er fjarri því að vera einhver snilld.
Bragðið er frekar einfalt og krefst ekki mikillar vinnu af
bragðlaukanna hálfu en það þarf þó ekki að túlka sem neikvæða
umsögn. Í heild þá er þetta bara hinn ágætasti bjór sem
væri líklega mjög fínn með jólaskinkunni eða hamborgarhrygg.
Má samt alls ekki vera flatari. Þetta er annar bjórinn
sem ég smakka frá þessu ágæta brugghúsi, hinn heitir
WEISSER HIRSCH og er hinn
ágætasti hveitikall.
ATH ÞESSI BJÓR VAR
Í BOÐI MAGGA OG RÖGNU! TAKK FYRIR FRAMLAGIÐ |