Helstu tilkynningar!
-til baka-
Hér má finna það helsta sem er að gerast í hinum íslenska bjórheimi. Þar sem vefsíðan er enn blaut bak við eyrun þá er ekki mikið um tilkynningar komnar inn en það kemur. Svo má benda á að allar ábendingar eru meira en vel þegnar og sendast á bjor(hjá)bjorbok.net.
![]() |
1.11.2010 - Alltaf gaman að tilkynna um nýjungar í ÁTVR. Bruggsmiðjan er komin með nýjan bjór, Stinnings - kalda sem er bruggaður úr m.a. ætihvönn. Skemmtilegur bjór. Einnig eru væntanlegir karlar eins og Chimay Peres Trappistes, Chimay Triple, Left Hand Black Jack Porter, Left Hand Juju Ginger, Flying Dog Road Porter, Anchor Old Foghorn og Anchor Porter, þe.a.s ef heimildir mínar eru réttar. Nýlega kom svo Meantime Chocolate sem er stórskemmtilegur stout. Rúsínan er svo íslenskur IPA frá Borg brugghús sem ætti að fara detta inn hvað úr hverju. Um er að ræða virkilega góðan bjór. |
![]() |
17.7.2010 - Nú er eitthvað aðeins að gerast í ÁTVR. Nokkrir nýjir karlar í hillunum. Spurning hvað það helst lengi, líklega er þetta bara eitthvað sumarástand. En hvað um það, það má nefna skemmtilegan bjór Tilburg's Dutch Brown Ale, mjög álitlegur bjór. Svo sá ég St. Idesbald Dubbel sem er belgískur dubbel, ágætur karl. Svo er kominn belgískur hveitibjór, Blanche des Neiges Wit, sem ég hef ekki smakkað en þeir klikka sjaldan hveitibjórarnir frá Belgíu. Svo er einnig hægt að fá De Koninck Tripel. Hef ekki smakkað hann en hann er án efa gríðarlega góður, þ.e.a.s ef hann er alvöru tripel. Svo er eitthvað annað þarna líka sem þarf að skoða nánar en er minna spennandi. |
![]() |
19.6.2010 - Nú er eitthvað aðeins að gerast í ÁTVR. Nokkrir nýjir karlar í hillunum. Spurning hvað það helst lengi, líklega er þetta bara eitthvað sumarástand. En hvað um það, það má nefna skemmtilegan bjór Tilburg's Dutch Brown Ale, mjög álitlegur bjór. Svo sá ég St. Idesbald Dubbel sem er belgískur dubbel, ágætur karl. Svo er kominn belgískur hveitibjór, Blanche des Neiges Wit, sem ég hef ekki smakkað en þeir klikka sjaldan hveitibjórarnir frá Belgíu. Svo er einnig hægt að fá De Koninck Tripel. Hef ekki smakkað hann en hann er án efa gríðarlega góður, þ.e.a.s ef hann er alvöru tripel. Svo er eitthvað annað þarna líka sem þarf að skoða nánar en er minna spennandi. |
![]() |
7.5.2010 - Nú eru þeir Bruggsmiðjumenn komnir með nýjan karl á markað. Norðan Kalda kalla þeir hann. Sem fyrr nota þeri tékkneska humla en nú einni humla frá Nýja Sjálandi. Það er von mín að hér verði skemmtilegur bjór á ferðinni með dulítið meiri humlakeim en hinir Kalda bjórarnir. Gaman að fá eitthvað annað en þessa klassísku tékknesku humla í þetta. Hlakka til að smakka. |
|
|
26.9.2009 - Væntanlegir jólabjórar. Nú styttist í jólin og nokkuð áreiðanlegar heimildir hafa hvíslað að mér að eftirfarandi bjórar komi í hillur ÁTVR fyrir jólin, líklegast í lok nóvember. Við erum að tala um ekki ómerkilegri karla en Anchor Christmas Ale, Delirium Christmas, Samuel Adams Winter Lager og Winter Koninck. Um er að ræða mjög fjölbreytta flóru jólabjórs sem allir eru talsvert frábrugðnir hinum "venjulega" jólalager sem við Íslendingar erum svo vanir, þá á ég við Jólabjór Víkings og Egils Jólabjór. Aðrir jólabjórar sem við getum fengið þessi jólin eru Tuborg jóla, Jóla Kaldi og Ölvisholt jólabjórinn sem spennandi verður að prófa þetta árið. Svo virðist Mjöður ehf ætla að koma jólabjór á markað að þessu sinni. Fyrir þá sem svo eru staddir erlendis og koma heim fyrir jólin má benda á þessa jólabjórasamantekt. Hver veit nema menn geti kippt nokkrum góðum með heim. |
![]() |
21.8.2009 - Nú ættu nýju bjórarnir að vera komnir í hillur ÁTVR skv Elg hf. Um er að ræða mjög vandaða og góða bjóra. Anchor Liberty Ale og Anchor Steam Beer og svo hinn frískandi Duchesse De Bourgogne. Það er um að gera að prófa þessar bjórperlur þegar þær detta inn og áður en sumarið er yfirstaðið því þá detta þeir út aftur eftir minni vitneskju |
|
|
11.7.2009 - Nú eru nokkrir nýjir alveg að koma í hillur ÁTVR. Um er að ræða dásamlega vandaðan bjór frá Ameríku, Anchor Liberty Ale og Anchor Steam Beer. Það má líka svipast um eftir hinum dularfulla og frískandi Duchesse De Bourgogne. Það er um að gera að prófa þessar bjórperlur þegar þær detta inn og áður en sumarið er yfirstaðið því þá detta þeir út aftur eftir minni vitneskju |
![]() |
13.6.2009 - Eins áður hefur komið fram hér á síðunni er lítið leyndarmál að fæðast á Íslandi. Nú er komið að því að varpa hulunni af því hér á Bjórbókinni. Já þannig er að Ölgerðin er farin af stað með skemmtilegt verkefni, örbruggun. Það þýðir að bruggmeistari þeirra fær nú frjálsar hendur til að skapa sælkerabjór sem miðað er við að geti glatt lengra komna bjóráhugamenn (og konur auðvitað) landsins en einnig fyrir lagerþambara sem vilja kynnast betri bjórmenningu. Þó svo að reyndar sé ekki um alvöru örbruggun að ræða í beinum skilningi þessa orðs þar sem Ölgerðin er jú stórt og mikið brugghús, þá er þó verið að reisa húsnæði undir þessa framleiðslu og hugmyndafræðin að baki verkefnisins er örbruggun. Þetta er mjög spennandi og gaman verður að bragða á afrakstrinum sem kemur vonandi á markað fyrir sumarlok þó allt sé óvíst í þeim efnum því það tekur jú tíma að fínpússa og stilla af bjórinn svo vel verði. Fylgist nánar með hér á Bjórbókinni. |
|
|
3.6.2009 - Freyja frá Ölvisholti er mætt í hillur vínbúðarinnar. Um er að ræða ferskan hveitibjór. Um að gera að smakka og styrkja um leið íslenskt. |
![]() |
26.5.2009 - Það er lítið leyndarmál í smíðum á Íslandi í dag. Mjög spennandi fyrir bjóráhugamenn. Það verður gaman að sjá þegar leyndarmálið lítur dagsins ljós vonandi í sumar. |
|
|
25.5.2009 - Spennandi bjór á leið til landsins í sumar að öllum líkindum. Þar á meðal má nefna Duchesse De Bourgogne og Anchor Steam Beer sem er amerískur gullmoli. |
![]() |
20.5.2009 - Það má benda á að í sumar verður nýr bjór á markaðnum frá Ölvisholti. Sá mun vera að gerðinni hveitibjór í léttari kantinum. Fylgist með í vínbúðum landsins. |
|
|
20.5.2009 - Skriðjökull, er nýr bjór frá brugghúsinu Mjöður á Stykkishólmi. Það er um að gera að prófa þennan sem fyrst. |