web log free Bjór á Íslandi

Bjór á Íslandi
-til baka-

Um þessar mundir er bjórmenning okkar Íslendinga á mjög lágu plani og því ekki gott að vera bjóráhugamaður á þessum tímum.  Hins vegar er eins og við séum smám saman að lifna við og eftirspurn eftir gæðaöli er farin að aukast.  Bjórúrvalið á Íslandi er því miður enn í samræmi við bjórmenningarstöðu okkar, þ.e.a.s harla lélegt.  Það er þó enn hægt að fá nokkra af bestu bjórum veraldar í vínbúðinni og á sumum börum og krám.  Hér nefni ég nokkra af þeim bjórstílum sem vert er að elta uppi að mínu mati.  Hafa ber í huga að úrvalið er stöðugt að breytast og hágæða bjór dettur títt út úr sölu sökum lélegrar eftirspurnar.  Það er því ekki víst að allir þeir bjórar sem nefndir eru hér að neðan sé til þegar þú lest þetta einnig má hafa það í huga að sumir bjórar eru bara til á ákveðnum tíma, t.d. bara yfir sumarmánuðina eða í kringum jól. 

Sjá bjórúrval vínbúðarinnar hér

Það helsta sem vert er að smakka:

Ameríska ölið
(uppfært 22.5.09)

Bandaríkjamenn er mjög framarlega í bruggun gæðaöls og þar má finna aragrúa af stórkostlegum örbrugghúsum og bjór í stíl.  Ameríkanarnir eru þekktir fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að því að brugga og ekki hengja sig upp á ákveðnum reglum.  Það er því hægt að finna mjög spennandi og öðruvísi bjór í landi tækifæranna. Því miður er sorglega lítið til af amerískum bjór á Íslandi.Síðast þegar Bjórbókin tók púlsinn á markaðnum mátti finna Samuel Adams Black Lager og Boston Lager sem eru mjög mild dæmi um amerískan eðalbjór en fleiri Samuel bjórar eru svo til yfir sumarmánuðina og í oktober.  Það var svo hægt að fá mjög glæsilegan bjór, Anchor Steam Beer ekki fyrir svo löngu, en það er bjór sem vert er að leita uppi. Það er semsagt vöntun á amerískum bjór í Vínbúðinni en ég hvet fólk að fylgjast með og grípa slíkan bjór ef hann dettur inn í tilraunasölu.  Ég vil þó taka fram að ég er ekki að blanda Budweiser inn í þessar umræður, því fer víðs fjarri.
 

Belgíska ölið

(uppfært 14.5.09)

 


sem af mörgum er talið besta öl (ale) í heimi fæst í oftast í einhverju magni í vínbúðinni.  Þar má nefna Trappist bjórinn sem nánast er skylda að prófa vilji maður prófa það besta í bjórheiminum.  Aðeins eru 7 brugghús í veröldinni sem brugga þennan stíl. Orval, La Trappe, Chimay, Rochfort, Achel, Westmalle og Westvleteren. Oftast hefur verið hægt að fá eitthvað af þessum frábæru körlum á Íslandi. Svo er Leffe alltaf til,en hann er mjög snoturt dæmi um góðan belgískan blond sem er þægilegur bjórstíll en þó með mikinn karakter og bragð.  Í raun er vert að pófa all flest öl frá Belgíu ef í það næst.  Stundum er úrvalið bara ágætt í Vínbúðinni.  Delirium Tremens er t.d. bjórstíll sem of oft er vanmetinn, en þetta er mjög skemmtilegur og góður bjór sem fæst þegar þetta er skrifað í Vínbúðinni.  Það er þó oft þannig að vant lagerfólk finnst of mikið skref að skifta yfir í ölið (ale) en Belgar brugga mikið af bjór sem getur virkað sem hentugt millistig.  Dæmi um létt og milt öl er De Koninc sem er stórkostlegt belgískt öl í mildari kantinum og hefur oft
verið til heima á Íslandi. Mildur og svalandi hveitibjór, t.d.
Hoegaarden er einnig gott byrjunarskref.
 

Enska/Írska
ölið

(uppfært 22.5.09)

 


Af ýmsu er að taka þegar kemur að öli frá stóra Bretlandi.  Þar er t.d. vert að skoða stoutinn þeirra og prófa t.d. Guinnes sem er líklega þekktastur þeirra allra en alls ekki endilega bestur. Beamish Irish Stout og Kilkennys eru líka dæmi um stout og hefur stundum verið hægt að nálgast þá.  Það vantar þó alvöru Imperial Stout fyrir mitt leiti. Bretar eru þekktir fyrir mikið úrval öls og því er af ýmsu að taka.  Hafa ber í huga að breska ölið er allt annað en belgíska ölið t.d. og því má alls ekki setja það í sama hatt.  Það er því um að gera að skoða sig um og sjá hvað er í hillunum. Síðast þegar ég var á vappi í Vínbúðinni rak ég augun í nokkra mismunandi Fuller's bjóra, Newcastle Brown ale og Morlands Hen's Tooth til að nefna nokkra. Ölið frá Stóra Bretlandi er sérstakt öl sem menn verða að prófa.
 

Þýski bjórinn

(uppfært 7.11.10)

 

 


Þjóðverjar eru þekktir fyrir bjórinn sinn sem er vandaður og á sér langa sögu.  Bock er t.d. bjórstíll sem sprottinn er frá þeim og margir kannast kannski við því páskabjór er oftast af þessari gerð, sér í lagi sá danski en þaðan er páskabjór upprunninn.  Síðast þegar ég gáði var til einn bock á Íslandi, Holstein Festbock sem ég þekki reyndar ekki sjálfur.  Hveitibjórinn er líklega þekktasti bjór Þjóðverja og er algjört "möst" að smakka einn slíkan en hveitibjór er sá bjórstíll sem hvað mest svalar þorstanum ólíkt því hvað margir telja. Á heitum sumardegi er ekkert sem jafnast á við ískaldan hveitibjór. Franziskaner er gott dæmi um þennan bjórstíl og er með betri hveitibjórum veraldar og fæst enn fremur á ýmsum krám á Íslandi.  Erdinger, Paulaner Hefe Weissbier og Weihenstephaner (virkilega góður hveitibjór, einn sá besti) eru einnig góð dæmi sem ætti að vera hægt að finna í Vínbúðinni.

 


Íslenski bjórinn

(uppfært 7.11.10)


Blessunarlega fer úrval íslensks bjórs vaxandi, hægt en þó stöðugt.  Eins og staðan er í dag þá má fá ýmsan fínan íslenskan lager svo sem Thule, Egils Premium, Gullfoss og Jökul, vandaðan bjór af tékkneskri fyrirmynd eins og Kalda.  Svo er hægt að fá tvo íslenska stout bjóra, Lava frá Ölvisholti og Víking stout.  Loks má svo nefna Skjálfta og Móra sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.  Hið nýja örbruggús Borg er einnig farið að skila sínu.  Hægt er að fá úrvals pilsner á Ölstofunni er Brio heitir svo er IPA bjór frá þeim alveg að detta í sölu.

Sjáðu íslensku bjórdómana hér.
 

Lagerinn
(uppfært 14.5.09)

 


Eins og flestir vita þá er hægt að fá fínt úrval lagers á Íslandi og þarf vart að kynna það nánar hér!  Það má þó benda á að lager inniheldur einnig bjórstíla á borð við bock, svartbjór, kölsch og  pilsner sem er upprunanlegi ljósi lagerinn sem allir aðrir lagerbjórer eru sprottnir frá. Til að smakka alvöru pilsner þá má nefna Pilsner Urquell eða Budweiser Budvar.  Ja og svo má jú nefna Kalda sem er bruggaður í anda tékknesks pilsners. 

Það er því mögulegt að finna mismunandi bjór þó maður haldi sig bara innan lagerfjölskyldunnar þó svo að ölið (ale) bjóði upp á mun meiri fjölbreytileika.