web log free Mort Subite Gueuze
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mort Subite Gueuze

stíll :

Gueuze

brugghús :

Mort Subite

land :

Belgía

alkóhól :

4.5 %

fyrst smakkað :

16.03.2007

smökkunarstaður :

Árósar

Mort Subite Gueuze er ansi ljúfur gueuze sem auðvitað best er að njóta beint af krana á hinum frábæra stað A La Mort Subite í Brussel.  Flösku útgáfan er hins vegar ekkert slor heldur.  Í nefi má finna súran frískandi keim sem minnir á vínber eða hvítvín. Hér er svo sem ekkert sem kemur á óvart þar sem um gueuze er að ræða.  Í munni er þetta gríðar léttur og hressandi bjór með súrum mysukendum blæ sem einkennir lambic byggða bjóra. Svo læðist að manni sætur kirsuberja keimur með brenndum sykri. Mjög frískandi og svaladni bjór sem hægt er að þamba
í lítravís á heitum sumardegi. Þetta er fínn Gueuze en kannski aðeins í sætari kantinum, hann mætti vera ögn súrari til að vera meira alvöru.