web log free Móri
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Ölvisholt Brugghús, Móri

stíll :

Öl

brugghús :

Ölvisholt Brugghús

land :

Ísland

alkóhól :

5,5%

fyrst smakkað :

26.09.2008

smökkunarstaður :

Árósar

Hér kemur bjór nr tvö frá Ölvisholti, gríðarlega fallegur bjór, tær og rauður með létta froðu.  Mjög fallegur í glasi.  Nafnið er komið frá draug nokkrum er Móri heitir og er sagður þvælast um sveitirnar þarna í kringum brugghúsið.  Mér finnst sérstaklega gaman að smakka þennan bjór því ég fékk að smakka hann á meðan ÖB menn voru enn að þróa kauða. Þetta er þéttur bjór með fína góða fyllingu.  Mildur en þó þægileg beiskja frá humlunum sem minna á hina amerísku Cascade humla, þó svo að hér sé um enska humla að ræða nóta bene.  Einnig má finna sætan keim frá maltinu, létt ristað malt og kryddað yfirbragð, verður þó langt frá því væminn sökum humlanna.  Minnir ögn á Skjálfta og IPA.  Svo nær upplifunin hámarki með feykilega ljúfu og góðu eftirbragði sem einkennist af malti, karamellu og ögn beiskju og blómum.  Frábær bjór.