HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
gamla bjórbók
 
 
 

     Klumbacher Mönchshof Schwarsbier

stíll : Þýskur Schwartsbier
brugghús : Kulmbacher Brauerei
land : Þýskaland
alkóhól : 4.9%
fyrst smakkað : 01.10.2004
smökkunarstaður : Rothenburg í Þýskalandi

Kolsvartur bjór en þó með ögn rauðum blæ.  Við fyrstu sýn mætti ætla að hér væri á ferð rótsterkur Stout eða Portari en svo er ekki.  Bjór þessi er nefnilega svartur þýskur lager af gerðinni schwartsbier.  Það sem einkennir þennan svarta skratta er mikið dökkt ristað malt í nefi sem og í munni. Einnig dálítið um hnetur. Ekki frá því að maður geti gert sér upp dökkt súkkulaði á tungu.  Annars er þetta afar frískur karl með fínum humlum sem vega upp annars sætt maltið.   Fylling er fín og eftirbragð afar gott og varandi.  Hér er frábært dæmi um það að lager er ekki bara hinn gullni pilsner.