|
Hér
er ég að smakka minn þriðja Mikkeller bjór reyndar var ég
búinn að smakka áður jólabjórinn þeirra en náði nú aldrei að
hripa neitt niður. Þessi bjór er dökk brúnn í glasi
með skammífa froðu. Í nefi má finna súkkulaði og mikið
malt. Þetta er svo ansi
mildur og mjúkur bjór með þægilega tóna. Ristað malt
er áberandi sem gefur ákveðna sætu en einnig dálítið
brenndan keim sem minnir á kaffi. Humlar koma einnig
vel út
og skapa gott jafnvægi og gefa þægilegan biturleika og gæðir
bjórinn lífi. Eftirbragð er svo með ágætum og læðist
að manni smá dökkt súkkulaði í restina sem kemur skemmtilega
inn í næsta sopa ef maður hefur stutt á milli þeirra. Já
þetta er hinn ágætasti bjór sem ég gæti vel hugsað mér að
kippa með í innkaupakörfuna aftur. Eftir að hafa smakkað
alla fastabjóra Mikkellers þá held ég að sigurvegarinn í
þeim hópi sé samt
Mikkellers IPA.
Eftir þessa úttekt mína á Mikkellers þá verð ég samt að
segja að Nørrebro Brygeri stendur enn uppúr
af dönskum brugghúsum. |