web log free Mikkeller Gypsy Juice
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnćmt
  pistlar ofl
 
  fróđleikur
 
 
 

Mikkeller Gypsy Juice

stíll : Imperial Stout
brugghús : Mikkeller bryggeri
land : Danmörk
alkóhól : 8.0 %
fyrst smakkađ : 26.6.2011
smökkunarstađur : Reykjavík

Stout, ekki algjörlega minn uppáhalds stíll, ţó á ég nokkra uppáhalds.  Ţessi lendir í ţeim flokki.  Kolsvartur í glasi eins og svartasta olía međ brúna dásamlega frođu sem endist ágćtlega.  Í nefi er heilmikiđ ađ gerast, ferskir humlar og heilmikiđ brennt malt og svo ţurkađir ávextir.  Ţegar bjórinn er kominn í munninn finnur mađur hversu miklir snillingar ţessir menn eru.  Ţróttmikill er hann međ eindćmum, minnir í raun á imperial IPA sem er mér svo kćr stíll.  Reyndar eru humlar ekki alveg eins áberandi ţó beiskur sé í kinnum og maltiđ er mun meira.  Einnig má gefa sér kaffikeim sem lurir í bakgrunni.  Sem sagt ekki ţurr reyktur stout eins og t.d. Guinnes heldur minnir hann frekar á sćtari imperial stout.  Dásamlegur bjór sem ég mun klárlega kaupa aftur og aftur!