|
Mikkeller
er orðið eitt af mínum uppáhalds dönsku mikrobugghúsum.
Hér eru þeir með glænýjan
IPA
sem þeir
kalla Green Gold. Bjórinn ber nafn með réttu því hér
er sannkallaður fjársjóður á ferð. Áður hef ég smakkað annan
IPA frá þeim köppum,
Stateside Indian Pale Ale
og sá var sko ekkert slor. Þessi er í nefi snarpur og
beiskur með humal og sítruskeim sem minnir helst á Campari
eða eyrnamerg. Í munni er hann sprækur og hoppandi með mikla
mýkt og alúð. Beiskir humlarnir lífga vel uppá bjórinn
og sítrus/grape kemurinn setur sterkan svip á bragðið en
einnig má finna snefil af sætum maltkeim, líklega karamella
eða álíka. Þrusu fylling og dásamlegt efirbragð. Já
Mikkeller gerðu það aftur, með þessum nýja IPA sannar þetta
litla magnaða danska brugghús að þeir eru meistarar á sínu
sviði. Þessi bjór á vel heima með flestum mat eða bara
sem hyggebjór eins og Danir segja, á síðkvöldi við
arineldinn. Snilld. |