|
Mikkeller
eru þekktir fyrir að fara ótroðnar slóðir í bjórmálum.
Hér eru þeir komnir með stout sem er mjög sérstakur. Í
bjórinn eru notaðar víetnamskar kaffibaunir (Ca Pe Chon) sem
er dýrasta kaffi á jörðinni. Baunirnar eru unnar úr saur
úr einhverju suðuramerísku dýri, greifingja eða álíka.
Dýrin borða aðeins bestu og þroskuðustu kaffibaunirnar.
Já en bjórinn er rosalegur, silkimjúkur með gríðarlegan
skrokk. Kaffið er áberandi, og svo má finna súkkulaði í
hárréttu magni ásamt brenndu malti. Biturleika er stillt
í hóf en annað má segja um áfengismagn. 10.6%, já en það
kemur nánast ekkert fram í bragðinu, bara sem unaðslegur ylur
um allan skrokkinn. Já gríðarlega vel lukkaður bjór,
spurningin er svo bara hvort hann hafði ekki líka orðið góður
með venjulegu kaffi og þá ódýrari? Hmm hver veit. |