web log free Mikkeller Beer Geek Breakfast
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller Beer Geek Breakfast

stíll : Stout
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 7.5 %
fyrst smakkað : 14.1.2007
smökkunarstaður : Árósar

Ég hef heyrt marg gott um þennan bjór og því er ég að reyna hvað ég get að fíla hann en verandi lítt hrifinn af stout þá er það pínu erfitt. Hann er kolsvartur í glasi með brúnni froðu sem minnir á fallegt "creama" efst á nýrunnum espresso. Í nefi er sætur keimur með kaffi og lakkrís.  Þetta er þrusu bjór, bragðmikill og pínu þurr með mikilli beiskju og sýru og dálítið reyktur.  Eitthvað skrítið grape bragð sem laumast að manni og truflar mig pínu.    Einnig má finna lakkrís, kaffi enda notað við bruggunina og kannski smá súkkulaði.  Mér finnst vanta dálítið uppá mýktina en bragðmikill er hann og með mikla fyllingu. Feður þessa bjórs mæla með honum með morgunmatnum en ég held að það sé bara ávísun á alkóhólisma.  Það er að vísu bæði hafrar og kaffi  í brugginu sem er jú uppistaða í mörgum morgunmatnum.