|
Hér
er bjór númer tvö í snilldar seríu frá Mikkeller. Hér
er um að ræða IPA bjóra sem eru bruggaðir úr einni tegund
humals. Á þennan hátt er hægt að bera saman mismunandi
bjór og þar af leiðandi átta sig betur á hvað humlarnir eru
að gera fyrir bjórinn. Í þennan bjór hér er notaður
Warrior humall sem er klassískur humall í amerískan
heimabruggaðan IPA og er frekar nýr af nálinni. Þetta
er gruggugur og mattur bjór með fína þétta froðu. Í
nefi eru blóm, áberandi humlar og jörð. Í munni er
mikil og hressandi fylling. Fullt af beiskju, blóm og
hressandi humlarnir og smjör. Já mikill bjór með
skemmtilega þægilega beiskan keim og geisilega gott
eftirbragð. Hentar vel sem matarbjór og kjörinn með
indverskum mat. Ath prófið líka
Simcoe Single Hop IPA
frá Mikkeller. Hann er mjög skemmtilegur. |