web log free Mikkeller IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller Simcoe Single Hop IPA

stíll : Indian Pale Ale
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 6.9 %
fyrst smakkað : 6.1.2009
smökkunarstaður : Árósar

Mikkeller gera alltaf spennandi og dálítið öðruvísi bjór.  Hér er eitt dæmið ljóslifandi komið.  Simcoe IPA.  Um er að ræða bjór af gerðinni Indian Pale Ale úr nýrri seríu frá Mikkeller sem fjallar um IPA með einni gerð humla.  Þetta er gríðarlega skemmtilegt uppátæki hjá þeim því með þessu móti fær hinn almenni bjórdrykkjumaður að upplifa hvaða eiginleika viðkomandi humall gæðir bjórinn.  Hér er það hinn ameríski Simcoe humall sem fær að njóta sín.  Þetta er ofsalega skemmtilegur humall með mikinn angan, þar sem finna má furu og blóm í bland við sítrus.  Í munni má einnig finna beiskjuna frá humlinum sem og þetta skemmtilega furubragð.  Mikill frískleiki yfir þessum bjór og einstaklega vandað handbragð.  Fylling er góð og eftirbragð einstakt.  Þetta er alvöru bjór.