|
Santas
Little Helper 2007 er einn af tveimur jólabjórum frá
meistörum Mikkeller í ár. Í fyrra kom þessi bjór líka
út hjá þeim en var þá ekki alveg eins og bjór gerist bestur
að þessu sinni er hins vegar annað upp á teningnum. Hér er á
ferð mikill bjór með heilmikið bragð sem ræðst á lauka og
vit. Get ekki annað sagt að hér sé bara einn
merkilegasti jólabjór Danmerkur á ferð. Mikil sæta í
nefi sem ég á erfitt með að skilgreina. Í munni má
nefna sætt malt og humla sem tvinnast saman í merkilega
heild með einhverjum sætum keim af lakkrís, púðursykri og
svo er einhver undarlegur appelsínubarkarkeimur. Veit ekki
þessi bjór kemur mér bara gjörsamlega í opna skjöldu.
Já það er svo alveg óhætt að mæla með þessum til jóla og með
fallegum jólaborða gæti þessi bjór vel gengið sem hin
fínasta jólagjöf. Bjórklúbburinn Kiddi gefur þessum
bjór auk þess bestu meðmæli sín. |