web log free Mikkeller RugGoop
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller/Three Floyds Ruggoop

stíll : Amerískt hveitivín/wheat wine
brugghús : Mikkeller bryggeri  og Three Floyds
land : Danmörk
alkóhól : 10.4 %
fyrst smakkað : 3.6.2011
smökkunarstaður : Reykjavík

Ruggoop eða rúgvín eins og mætti kalla hann er 3. ofurbjórinn frá Mikkeller og Three Floyds.  Um er að ræða barley wine stíl með fullt af rúgi sem uppistöðu kornsins.  Þetta er svakalegur karl eins og bræður hans Hvedegoop og Oatgoop. Ljósbrúnn, mattur flott þétt froða sem endist leeeengi. Í nefi mikill sætur ávaxtakeimur og rúsínur. Í munni er mikið að gerast, fuuuuullt af góðgæti. Mikið sætt malt, mikill þétteiki og alveg þessi fína dúndur beiskja. Það er dásamlegt vínlegt yfirbragð af karlinum, einhver karamella eða toffy? Jafnvægi humla og malts er aðdáunarverð og rúgurinn kemur inn og skapar fyllingu og sætu. Bjór þessi er ekki sama dúndur sprengjan og Hvedegoopinn þeirra heldur er hann mildari og sætari algjörlega án þess að vera of sætur. Hvernig er þetta hægt. Það er svo fullkominn þurr beiskur eftirkeimur sem einhvernvegin samt er samofinn sætum púðursykurkeim

 

Þessi var í boði góðkunningja Bjórbókarinnar Óla. Takk!