web log free Mikkeller Oatgoop
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller/Three Floyds Oatgoop

stíll : Amerískt hafravín/oat wine
brugghús : Mikkeller bryggeri  og Three Floyds
land : Danmörk
alkóhól : 10.4 %
fyrst smakkað : 17.4.2009
smökkunarstaður : Langeland

Oatgoop sem þýðir hafravín á ensku og swahili er eitt af meistaraverkum Mikkellers og The Three Floyids sjá nánar hér.  Bjórinn er eftirfari Hvedegoop sem gerði allt vitlaust þegar hann kom fyrst út árið 2008.  Bjórinn er glæsilegur í glasi með fallegan haus og ilmar eins og engill.  Humlar og sítrus eru áberandi og minnir hann þannig á I.P.A.  Í munni er um gríðarlega mikinn bjór að ræða með afskaplega flókið og magnþrungið bragð.  Þar ber helst á beiskju, humlum og sítrus sem minnir aftur á IPA en svo er bara svo miklu meira í þessum karli.  Eitthvað krydd lurir í bakgrunni og svo súkkulaði og jafnvel smá vanilla.  Fylling er gríðarleg og eftirbragð svo magnað að ég ætla ekki að skemma það með því að reyna koma orðum á það.  Áfengismagnið finnst svo ekki nema sem hiti og vellíðan.  Framúrskarandi bjór í alla staði.  Fær 5 flöskur þó svo að Hvedegoopin hafi verið ögn betri.