|
Hér
lenti ég á bjór sem hefði getiað verið mögnuð upplifun.
Þessi bjór er bruggaður í Belgíu nánar tiltekið í brugghúsi
er kallast
De
Proef Brouwerij, Lochristi-Hijfte. Eins og glöggir menn
geta getið sér til um þá er þessi bjór bruggaður í anda
belgísks bruggs. Bjórinn er þeldökkur í glasi og mikil
og flókin lykt dansar upp úr glasinu. Hins vegar varð
ég fyrir ögn vonbrygðum með bragð. Jú jú það má finna hið
einstaka belgíska yfirbragð og flókinn er hann með eindæmum
en það er bara aðeins of mikið af því góða. Alkóhólið
skín of mikið í gegn og bragð verður of þrúgandi fyrir minn
smekk. Hef þó grun um að margir verði mér ósammála
hér. Það helsta sem má telja upp í bragði eru
þurrkaðir ávextir, sveskjur, og ger en einnig eitthvað
dálitið brennt og sterkt...jafnvel lakkrís eða álíka.
Datt líka í hug Brenni..gamla góða salgætið sem maður fékk
sér stundum á Íslandi hér á árum áður. Ég verð samt að
prófa þennan karl aftur við tækifæri. |