web log free Mikkeller It's Alive
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller It's Alive

stíll : Belgískt sterköl-Quadrupel
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 8.0 %
fyrst smakkað : 5.9.2008
smökkunarstaður : Árósar

Mikkeller kemur hér með enn einn furðubjórinn, "það lifir" heitir bjórinn eða It's Alive.  Skemmtilegt nafn sem er tilvísun í bruggaðferð bjórsins því í hann er notað villiger eins og það er kallað. Þ.e.a.s Brettanomyces sem er sú örvera sem mest er af í andrúmsloftinu og er "höfuðpaurinn" í bruggun Lambic og Gueuze. Ég er þó ekki viss um hvort eins sé farið að við bruggunina en þetta er samt sem áður belgískur bjórstíll og er það augljóst þegar bjórinn er smakkaður.  Í nefi má finna örlítið súran keim og mysu og smá fúkkalykt, klárlega komið frá villigerinu.  Í munni er um stóran bjór að ræða og mikinn með sætan keim, vel kolsýrðan og ögn mysu og svo þetta skemmtilega fúkkabragð í bakgrunni.  Sopinn endar svo með sætum blæ sem minnir á brenndan sykur eða karamellu. Alkóhól er ekki áberandi þó hann sé 8%.  Minnir talsvert á Trappist bjórinn Orval.  Mjög skemmtilegt.