|
Þetta
er eitt af þessum undrum í bjórheiminum, afurð sængurfara
tveggja bestu bruggara veraldar (sjá
nánar hér). Snúum okkur að bjórnum, í glasi er
hann fagurrauður með þykka flotta froðu. Um leið og ég
opnaði flöskuna fylltist stofan af unaðslegum angan.
Þar má finna súkkulaði, vanillu og sætt svart malt og
jafnvel sætan lakkrís ummm. Lyktin er einhvern vegin
alveg í takt við miðan..erfitt að útskýra. Bragðið er
svo magnað, lendir á bragðlaukum eins og flóðbylgja með
gríðarlega flókið og magnað bragð. Brennt malt, sykur,
sæta, dökkt súkkulaði og humlar sem passa fullkomlega við og
skapa jafnvægi sem hallast ögn í átt að humlunum og gera
bjórinn þægilega beiskann. Áfengið gerir svo sitt, mikill
hiti og unaður streymir um allan líkamann án þess að gefa
áfengisbragð. Maltið gefur dásamlega fyllingu og mýkt og svo
laangt eftirbragð með ögn kaffi, súkkulaði og smá beiskju.
Já þegar maður hefur prófað þennan ofurbjór skilur maður
nákvæmlega af hverju feður hans eru titlaðir bestu bruggarar
veraldar! |