|
Eins
og sannur Mikkeller bjór þá er þessi mikill í munni,
heilmikið malt, og sætur vínkeimur í nefi. Bruggaður í
samvinnu með
Brew Dog
brewery. Sætur og
dálítið um áfengi sem reyndar tekur aðeins of mikið í.
Sætt dularfullt malt í bakgrunni sem teygir sig út í langt
og ljúft eftirbragð. Það er þó eitthvað við þennan sem
truflar mig ég veit ekki alveg hvað það er. Fyrst
þegar ég smakkaði hann gaf ég honum 4.5 krúsir, en núna
myndi ég ekki fara ofar en 3.5 þannig að ég ætla að fara
milliveginn og setja 4 krúsir á þennan. Öflugur mikill
barley vine sem drekka þarf hægt og rólega í góðu jafnvægi
með opinn hug. Áfengi er heldur áberandi fyrir minn smekk,
myndi frekar mæla með
Mikkeller Big Worse sem einnig er barley wine.
|