web log free Mikkeller Cascade Single Hop IPA
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller Cascade Single Hop IPA

stíll : Indian Pale Ale
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 6.9 %
fyrst smakkað : apríl 2009
smökkunarstaður : Árósar

Hér er bjór númer þrjú í snilldar seríu frá Mikkeller.  Hér er um að ræða IPA bjóra sem eru bruggaðir eins nema hvað humlinum er skipt út.  Á þennan hátt er hægt að bera saman mismunandi bjór og þar af leiðandi átta sig betur á hvað mismunandi humlar eru að gera fyrir bjórinn.  Í þennan bjór hér er notaður Cascade humall sem er gríðarlega vinsæll humall í amerískan IPA.  Þetta er gruggugur og mattur bjór með fína þétta froðu.  Í nefi eru áberandi humlar og einkennandi IPA fílingur.  Í munni er mikill biturleiki og sítrus sem er svo einkennandi fyrir cascade IPA.  Ég verð þó að segja að þessi bjór er sístur af single hop seríunni.  Simcoe Single Hop IPA og Warrior Single Hop eru talsvert betri þessi er bara of rammur og það vantare einhverja mýkt. Það er þó gaman að prófa karlinn.