web log free Mikkeller Big Worse
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Mikkeller Big Worse Barley Wine

stíll : Barley Wine
brugghús : Mikkeller brygeri
land : Danmörk
alkóhól : 12.0 %
fyrst smakkað : 2.5.2009
smökkunarstaður : Árósar

Big Worse er öflugur bjór frá Mikkeller af stílnum barley wine eða bjórvín eins og ég kalla þennan merkilega stíl.  Nafnið skil ég ekki, "big worse" en það á sjálfsagt sína skýringu.  Bjórinn er hins vegar dásamlegur, gríðarlega mikill og svakalega mjúkur og þægilegur.  12% alkóhóls felast vel í þessum karli sem er sætur en samt með þó nokkra beiskju.  Það má finna karamellu eða toffee og súkkulaði og einhver krydd og jafnvel vanillu í bakgrunni.  Þurrkaðir sætir suðrænir ávextir koma einnig upp í hugann en eru þó til staðar í vægu magni.  Já þetta er kröftugur bjór sem maður á að njóta í rólegu umhverfi þar sem maður hefur nægan tíma.  Bjórinn passar vel með sætum eftirréttum og svo er um að ræða góðan bjór til geymslu eins og við á um barley wine yfirleitt.