|
Mikkeller er
og verður alltaf mjög spennandi og óútreiknanlegt brugghús.
Hér er komin nýr bjór frá þeim sem þeir nefna The American
Dream. Þeir kalla þetta pilsner en ég verð þó að
segja að bjórinn á fátt líkt með
pilsner, hann þó bruggaður með lagergeri og
kaldgerjaður. Hvað um það bjórinn er góður, meira að
segja mjög góður, eiginlega með betri lagerbjórum sem ég hef
komist í. Já og ameríska yfirbragðið skín bersýnilega í
gegn. Þetta er gylltur bjór með léttu gruggi og fína froðu. Í
nefi er mikið að gerast, humlar og fullt af þeim, einhver
notalegur sætur keimur líka sem minnir talsvert á ástaraldinn
í bland við grape. Í bragði má einnig finna þennan
ástaraldinn tón ásamt beiskum sýrðum keim sem stafar líklega
af amerísku humlunum sem mikið er af. Bjórinn gefur góða
fyllingur og hefur heilmikið gos. Já stórskemmtilegur
bjór sem minnir dálítið á amerískan IPA en þó ekki. |