web log free Melbourn Cherry
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Melbourn BR. Cherry

stíll :

Kirsuberja lambic (ávaxtabjór)

brugghús :

Melbourn Brothers Brewery (Samuel smith)

land :

England

alkóhól :

3.4 %

fyrst smakkað :

17.09.2005

smökkunarstaður :

Árósar

Melbourn Cherry er eins og nafnið bendir til ávaxtabjór sem bruggaður er með kirsuberjum.  Bjórinn byggir á hinum belgíska lambic þar sem villiger úr andrúmsloftinu fær að leika lausum hala.  Í nefi er hann ógurlega sætur og minnir á saft en svo má greina "mysulambic" keiminn í bakgrunni.  Þetta er ægilega ferskur og svalandi gutti og gríðarlega frúttaður með áberandi kirsuberjum. Það bjargar honum frá væmni að það má greina hinn súra mysukeim frá lambicnum í gegn og bjórinn verður ögn þurr og súr á tungu.  Gos er af ríkum mæli og skapar kitlandi freyðivínstilfinningu. Mildur og ljúfur bjór með mjög sætu eftirbragði.  Logandi rauður bjór með fagurbleikan froðuhaus sem varir þó skammt.  Þessi ágæti bjór sæmir sér vel sem fordrykkur við allra hæfi í hvers kyns veislum eða matarboðum en er samt ómögulegur session bjór.