web log free Maredsous 10
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Maredsous 10

stíll : Belgískur Tripel
brugghús : Brouwerij Moortgat
land :

Belgía

alkóhól : 10,0 %
fyrst smakkað : 07.05.2005
smökkunarstaður : Århus

Maredsous kemur úr smiðju Moortgat sem eru þeir sömu og "smíða" Duvelinn víðsfræga.  Bjór þessi er líkt og Duvel kristal tær og gylltur og með fína þétta froðu í glasi.  Í nefi er hann frúttaður með ilmvatnsblæ (perfumy) eða spearmint? Í munni er hann bragðmikill, þróttmikill og nokkuð vínlegur.  Líkt og frændi hans Duvel er nokkuð um frútt en svo er hann pínu blómlegur og nokkuð beiskur með alkóhólívafi.  Þægilegur hiti fylgir hverjum sopa sem liggur fullur og mjúkur í munni.  Ögn þurr á tungu og með magnað eftirbragð með þægilegum maltblæ.  Í heildina minnir þessi pínu á Duvel frænda en Westmalle er einnig ofarlega í huga.  Þegar líður á bjórinn verða 10 prósentin hins vegar  nokkuð áberandi og verð ég að draga hann ögn niður af þeim sökum.  Annars bara mjög fínn Tripel sem vert er að prófa.