web log free Maisels Weisse
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Maisel's Weisse Original

stíll : Þýskur hveitibjór - Weissbier
brugghús : Brauerei Gebr. Maisel
land : Þýskaland
alkóhól : 5.4%
fyrst smakkað : 28.02.2005
smökkunarstaður : Århus
Þessi fíni hveitikall kom mér skemmtilega á óvart.  Hann er afar bragðmikill og ljúffengur og svalandi með eindæmum.   Vel mattur og fínn með góða froðu efst eins og vera ber.  Í litlum nebbaling má finna smá perukeim í bland við sítrus og svo er gersveppurinn áberandi.  Bragðlaukarnir kunna líka vel við kauða og þeir eru að skila svipuðum keim og í nefi.  Mjög léttir humlar, pera og svo milt og gott gerið.  Fylling er góð og eftirbragð hæfilega langt.

Þetta er einn af þessum sumarkillerum sem steinliggja með grillmatnum.