|
Brauhaus Lüdde
er geysilega skemmtilegur bruggpöbb í Quedlinburg og afar
notalegt að eyða þar kvöldstund. Bjórinn á staðnum er
hins vegar ekkert náttúruundur og kannski heldur langt að fara
alla leið til Quedlinburg einungis fyrir þennan bjór.
Pilsenerinn þeirra er samt ágætur. Í nefi eru miklir
humlar og í munni pakkar hann ágætis fyllingu og með létta
kolsýru. Þetta er snarpur og vel humlaður bjór með létt
og ljúft eftirbragð sem varir skammt. Í útliti er hann
nokkuð hveitibjórslegur því hann er ansi gruggugur en hér er
eftir sem áður um alvöru pilsener að ræða. |